ÁBENDINGAR, HRÓS OG KVARTANIR
Mikilvægur þáttur í að bæta, breyta eða viðhalda þjónustustigi Lífstíðar við viðskiptavini er að fá upplýsingar um það sem vel er gert eða betur má fara. Senda má ábendingu, hrós eða kvörtun á netfangið lifstid@lifstid.is
Við tökum einnig við ábendingum í síma 420 8100, bréfleiðis eða í eigin persónu í höfuðstöðvum okkar að Hlíðasmára 17, 201 Kópavogi.Þá er hægt að senda skilaboð í gegnum heimasíðu Lífstíðar undir fyrirsögninni „HAFA SAMBAND“
Stefna og reglur um meðhöndlun ábendinga og kvartana
Tilgangur
Að tryggja gegnsætt og skilvirkt verklag við úrvinnslu ábendinga og kvartana sem berast Lífstíð og tryggja að slík erindi fái skjóta, skilvirka og sanngjarna meðferð í samræmi við reglur nr. 353/2022 um eðlilega og heilbrigða viðskiptahætti.
Stefna
- Ábendingar sem berast Lífstíð fara í vinnslu eins fljótt og auðið er. Framkvæmdastjóri Lífstíðar annast úrvinnslu ábendinga og eftir atvikum vátryggingasölumenn í samráði við framkvæmdastjóra. Ábendingar eru nýttar til að bæta þjónustu og afgreiðslu mála hjá Lífstíð eins og við á. Senda má ábendingu, hrós eða kvörtun á netfangið lifstid@lifstid.is Við tökum einnig við ábendingum í síma 420 8100, bréfleiðis eða í eigin persónu í höfuðstöðvum okkar að Hlíðasmára 17, 201 Kópavogi.
- Sendi aðili óskýra ábendingu er leitað eftir nánari upplýsingum frá viðkomandi svo hægt sé að afgreiða ábendinguna á viðeigandi hátt.
- Staðfesting á móttöku ábendingar og samskipti sem af henni leiða eru skrifleg eða með sambærilegum hætti og ábendingin barst. Móttaka er staðfest innan 24 stunda og leitast er við að afstaða Lífstíðar í málinu liggi fyrir innan þriggja virkra daga og ekki seinna en innan fjögurra vikna. Dragist afgreiðsla lengur skal viðkomandi aðili fá skýringu á töfinni og hvenær niðurstaða sé væntanleg.
- Lífstíð heldur skrá yfir ábendingar sem berast. Öll tengd gögn eru vistuð með ábendingunum, ásamt niðurstöðu og afstöðu Lífstíðar til þeirra, og geymd að lágmarki í fimm ár.
- Gætt er að því að farið sé með allar persónugreinanlegar upplýsingar sem fylgt geta kvörtunum í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
- Telji viðskiptavinur að mál hans hafi ekki fengið ásættanlega úrlausn í samræmi við lög eða reglur getur hann leitað til Úrskurðarnefndar í vátryggingamálum
Eftirlit
Framkvæmdastjóri Lífstíðar annast og hefur eftirlit með því að unnið sé skv. ofnagreindri stefnu og í samræmi við reglur nr. 353/2022 um eðlilega og heilbrigða viðskiptahætti.