BARNATRYGGING

Barnatrygging veitir góða fjárhagslega vernd vegna slysa eða sjúkdóma sem börn kunna að verða fyrir. Hægt er að velja tvær mismunandi útfærslur þar sem bótasviðið er það sama en bótafjárhæðir misháar.
Bótasvið og vátryggingarfjárhæðir eru sem hér segir:

 Barnatrygging TM1Barnatrygging TM2
Örorkubætur grunnfjárhæð:kr. 5.481.000kr. 10.960.000
Örorkubætur við 100% örorku:kr. 17.810.000kr. 35.630.000
Sjúkrahúsdagpeningar:kr. 2.740 á dagkr. 5.480 á dag
Umönnunarbætur*:kr. 54.800 á mánuðikr. 110.000 á mánuði
Dánarbætur:kr. 658.000kr. 658.000
Iðgjald á mánuði:kr. 1.042kr. 1.590

*Umönnunarbætur greiðast ef vátryggingartaki á rétt á slíkum bótum hjá Tryggingastofnun ríkisins.
Barnatrygging gildir frá 3ja mánaða aldri vátryggðs til 25 ára. Þó falla umönnunarbætur og sjúkrahúsdagpeningar niður þegar vátryggður nær 18 ára aldri. Ekki er hægt að kaupa tryggingu fyrir börn sem eru 16 ára og eldri.

Close Menu
×
×

Cart