LÍFTRYGGING

Hefur þú fyrir öðrum að sjá eða hefur þú tekið á þig fjárhagslegar skuldbindingar sem aðrir ábyrgjast? Ef svo þá ættir þú að huga að líftryggingu. Líftrygging greiðir rétthöfum bætur við fráfall þess sem tryggður er, hvort sem það er af völdum sjúkdóma eða slysa. Hinn vátryggði ákveður sjálfur hverjir eru rétthafar bóta og eru þeir tilgreindir á vátryggingarskírteini. Bætur eru greiddar út í formi eingreiðslu og eru skattfrjálsar. Líftrygging gildir til 75 ára aldurs hins vátryggða og er að jafnaði óuppsegjanleg af hálfu vátryggingafélagsins. Vátryggingartaki getur á hinn bóginn sagt henni upp hvenær sem er.
Til að meta fjárhæð líftryggingar þarf að taka mið af af tekjum, skuldum, fjölskylduhögum og fjölskyldustærð vátryggðs. Fáðu launaverndargreiningu þér að kostnaðarlausu.

ábendingar
Close Menu
×
×

Cart